Smali

Through the Desert on a Horse With No Name

föstudagur, júní 06, 2008

Vá, eru ekki allir spenntir fyrir að kaupa nýju plötuna hans Bubba? Mig minnir að hún heiti "Sólin skín út um rassgatið á mér".

fimmtudagur, júní 05, 2008

Mig dreymdi í nótt að ég væri að verða afi. Lúmskur grunur læðist að mér um að undirmeðvitundin hafi þarna verið að spila með mig vegna þess að í morgun fór elsta dóttir mín, á fimmtánda ári, í heimsókn til vinkonu sinnar Spáni.