Smali

Through the Desert on a Horse With No Name

laugardagur, febrúar 21, 2009

Upp á síðkastið hef ég komið að máli við ótal manns og skorað á viðkomandi að bjóða sig nú fram til Alþingis í apríl. Að sjálfsögðu hef ég eingöngu talað við fólk sem hafði ekkert verið að velta fyrir sér framboði fyrr en ég og hundruðir manna og kvenna á borð við mig fórum að þrýsta gríðarlega á það. Allir sem ég hef talað við hafa tilkynnt um framboð, nú síðast Tryggvi Þór Herbertsson sem mér finnst nauðsynleg viðbót á þingið til að tala upp bankana eins og hann hefur svo mikla reynslu af. Oft var þörf...

fimmtudagur, febrúar 19, 2009

Óskaplega er hann orðinn þreyttur, orðaleikurinn sem gengur út á kvalir og hvali.